Mitt svæði

Er íþróttafólk á Íslandi að fá þá aðstoð sem það þarfnast?

pistlar íþróttanæring Sep 11, 2024

 

Þjálfarar og Íþróttafólk er nú meðvitaðra en nokkru sinni fyrr, um það, hversu miklu
máli ákveðnir þættir skipta þegar kemur að frammistöðu íþróttafólks. Þar má einna
helst nefna líkamlega þjálfun, endurheimt og næringu.

Næringin veitir okkur orkuna til þess að framkvæma líkamlegar hreyfingar og er auk þess grundvöllur allra efnaskipta líkamans. Auðvitað skiptir næring miklu máli fyrir alla, hvort sem um ræðir íþróttafólk eða aðra hópa. Góð næring stuðlar að líkamlegri og andlegri vellíðan, styður vöxt og breytingar líkamans í gegnum allt lífið og getur komið í veg fyrir ýmsa lífsstílstengda sjúkdóma og aðra fylgikvilla óheilbrigðs lífsstíls.

Hins vegar hefur íþróttafólk oft aðra næringarþörf heldur en almenningur þar sem
íþróttaiðkun krefst mikils af líkamanum. Þar af leiðandi er munur á sérsviðum
næringarfræðinnar: lýðheilsunæringarfræði, klínískri næringarfræði og því sem er
skilgreint sem íþróttanæringarfræði.

Hvað gera íþróttanæringarfræðingar?

Íþróttanæringarfræðingar sérhæfa sig fyrst og fremst í því að hjálpa íþróttafólki að
hámarka afkastagetu og frammistöðu sína, ásamt því að efla heilsu. Til að ná
þessum markmiðum er þó mjög mikilvægt að taka afstöðu til hvers og eins
einstaklings þar sem næringarþörfin tekur mið af fjölmörgum þáttum: íþrótt, stöðu,
lífsstíls, æfinga- & keppnisálagi, einstaklingsbundnum markmiðum, fæðuvenjum,
meiðslum og veikindum, bara svo eitthvað sé nefnt. Þar að auki er orku- &
næringarþörf íþróttafólks síbreytileg. Til dæmis er orkuþörf í keppni talsvert hærri og
frábrugðin orkuþörf á hvíldardegi.

Íþróttanæringarfræðingar aðstoða íþróttafólk við fæðuval hverju sinni miðað við þarfir
þess. Þar eru margir þættir teknir inn í reikninginn eins og hvaða áhrif orkugefandi
næringarefnin (kolvetni, prótein og fita), vítamín, steinefni, vökvajafnvægi,
samsetning og tímasetning máltíða hafa á frammistöðu, endurheimt og almenna
heilsu.

Þegar allir þessir þættir eru teknir saman kemur bersýnilega í ljós þörfin fyrir því að
leiðbeina og kenna íþróttafólki að næra sig í samræmi við líkamlegt álag og þarfir.
Það er nefnilega ekki til neitt galdra mataræði sem hentar öllu íþróttafólki; langt því
frá!

Góð og viðeigandi næring getur stutt við ýmsa þætti sem skipta sköpum þegar
kemur að frammistöðu í íþróttum, þ.á.m:

·        Aukin afkastageta
·        Almenn heilsa
·        Gerir einstaklingi kleift að æfa lengur og af meiri ákefð
·        Seinkar þreytu á meðan æfingu/keppni stendur
·        Viðhald vökvajafnvægis
·        Viðhald heilbrigðs ónæmiskerfis
·        Aukin & hraðari endurheimt
·        Breytingar á líkamssamsetningu
·        Minni líkur á meiðslum & veikindum
·        Þjálfunaraðlögun
·        Aukin einbeiting
·        Betri svefn

Ung sérgrein en ört vaxandi

Íþróttanæringarfræði sem sérgrein er fremur ung samanborið við margar aðrar
starfsgreinar. Upptök íþróttanæringarfræðinnar eru talin hafa átt sér stað í Svíþjóð á
4. áratug síðustu aldar þar sem rannsóknir á efnaskiptum kolvetna og fitu voru
framkvæmdar. Á 7. og 8. áratugnum tók fagið stakkaskiptum og mikil aukning varð á
rannsóknum víðs vegar, einkum í Bandaríkjunum, Skandinavíu og Bretlandi. Loks
upp úr 1980 varð íþróttanæringarfræði að viðurkenndri sérgrein. Ef við spólum svo áfram til dagsins í dag hefur fjöldi rannsókna á sviðinu margfaldast
sem og almenn þekking á hinum ýmsu áhrifum sem næring getur haft á íþróttafólk.

Enn langt í land

Þegar staða íþróttanæringarfræðinnar á Íslandi er borin saman við okkar
nágrannaþjóðir og meginland Evrópu má helst sjá gífurlegan mun á fjölda stöðugilda
hjá íþróttafélögum og -samböndum. Á meðan mörg íþróttafélög og sérsambönd erlendis hafa innan sinna raða teymi íþróttanæringarfræðinga, auk annarra
sérfræðinga, er ekki sömu sögu að segja hér heima.

Þeir fáu menntuðu íþróttanæringarfræðingar sem starfa á Íslandi gera það oftar en ekki sjálfstætt og þá þykir höfundum skortur vera á samstarfi og tengingar milli íþróttanæringarfræðinga og íþróttafélaga & -samtaka. Þetta bitnar því miður á íþróttafólkinu okkar sem fær þar af leiðandi ekki þá aðstoð sem það þarfnast, og þá er einnig algengt að það viti hreinlega ekki að slík þjónusta sé í boði.

Þar að auki fær afreksíþróttafólk hérlendis sárasjaldan fjárhagslega styrki til að nýta sér aðstoð sérfræðinga í íþróttavísindum, hvort sem um ræðir íþróttanæringarfræðinga eða aðra sérfræðinga.

Höfundar þessarar greinar vonast til að hún veki athygli innan íþróttahreyfingarinnar
á Íslandi á þeirri brýnni nauðsyn sem er að auðvelda íþróttafólki okkar aðgengi að
sérfræðingum til að hjálpa að hámarka afkastagetu í sinni íþrótt. Þannig má stuðla
enn betur að þeirri framþróun sem hefur átt sér stað síðastliðna áratugi í íþróttastarfi
á Íslandi.

Hvað er Nutreleat?

Nutreleat er fyrirtæki sem sérhæfir sig í næringarráðgjöf fyrir íþróttafólk, byggða á
vísindalegri nálgun. Fyrirtækið samanstendur af íþróttanæringarfræðingum og veitir
alls kyns þjónustu, t.a.m. einstaklingsráðgjöf fyrir íþróttafólk, alls kyns fræðslu í formi
fyrirlestra og námskeiða svo eitthvað sé nefnt. Einnig var fyrirtækið að setja hlaðvarp
(e. podcast) á laggirnar þar sem farið verður í hin ýmsu málefni sem tengjast
íþróttanæringu. Í hlaðvarpinu verða ýmsir pólar skoðaðir sem tengjast
frammistöðubætandi áhrifum sem næringin getur haft. Rýnt verður í rannsóknir og
spennandi nýjungar í greininni, fjallað verður um mismunandi strategíur til að stuðla
að ofangreindum þáttum (sjá punkta upptalningu) og fæðubótarefni. Einnig verður
tekist á um hinar ýmsu mýtur sem fylgja auknu upplýsingaflæði. Þá er planið að vera
reglulega með gesti, jafnframt íþróttafólk, þjálfara og aðra næringarfræðinga sem
munu segja sínar sögur, skoðanir og nálganir á næringuna.

Þú getur nálgast hlaðvarpið HÉR.